Á rúntinum með Kidda

Alla miðvikudaga, frá september og út maí, stendur Ljósmyndasafn Akraness fyrir ljósmyndafundum í húsnæði safnsins að Dalbraut 1. Á fundunum hittist hópur fólks sem skoðar gamlar myndir og ber kennsl á það sem er á myndunum í þeim tilgangi að bæta skráningu á safnkostinum. Fundirnir eru öllum opnir. 

Á fimmtudögum eru svo ljósmyndafundir á Dvalarheimilinu Höfða þar sem starfsmaður ljósmyndasafnsins fer yfir ljósmyndir með íbúum og gestum. 

Ljósmyndafundunum stjórnar Kristinn Jens Kristinsson eða Kiddi Jens.

Í meðfylgjandi myndbandi, sem var tekið upp snemma í vetur, er farið á rúntinn með Kidda og honum fylgt eftir á ljósmyndafund á miðvikudegi og fimmtudagsfund á Höfða.

Sjón er sögu ríkari!