Ný heimasíða

Um síðustu helgi fór heimasíða Héraðsskjalasafns Akraness í loftið. Það er von okkar að hún eigi eftir að styrkja samband safnsins við nærsamfélagið og gera öllum fært að fylgjast með okkar mikilvæga starfi. Við ætlum að setja á þessa síðu helstu fréttir úr starfi safnsins, benda á viðburði er tengjast því og fræða samfélagið um hlutverk og starf safnsins. Endilega nýtið þessa síðu sem best.